Stafrænir innviðir fyrir fasteignafélög

Frá hugmynd að heimili.

Stafræn innviðalausn fyrir fasteignaþróun.

Viðurkenning
Söluvefur ársins
Orkureiturinn · Íslensku vefverðlaunin · 2025
Söluvefur ársins 2025
Hvað er PROPR?

PROPR er partur af Pipar\TBWA og býður sérhæfðar lausnir fyrir fasteignaverkefni sem sameina stefnumótun, markaðssetningu, hönnun, tækni og sölu í einu samræmdu ferli. Við vinnum með fasteigna- og byggingarfélögum frá grunni og tryggjum að allir þættir verkefnisins vinni saman að einu og sama markmiðinu.

Markaðurinn er lifandi. Framboð eykst jafnt og þétt, samkeppnin harðnar og kaupendur gera meiri kröfur til upplýsingagjafar, upplifunar og gagnsæis. Þess vegna þarf að huga að staðsetningu verkefna, vörumerkjum, miðlun og söluferlum mun fyrr en áður.

PROPR sameinar sérþekkingu á markaðsmálum og stafrænni tækni í einni heildarlausn fyrir fasteignaverkefni. Við þróum söluvefi, sölukerfi, gagnvirkar lausnir, þrívíða framsetningu og markaðsherferðir sem hjálpa verkefnum að ná meiri sýnileika, byggja upp eftirspurn og stytta leiðina að sölu.

Að baki PROPR er reynsla af stærstu þróunarverkefnum landsins ásamt alþjóðlegri þekkingu sem hefur verið þróuð og nýtt á ólíkum mörkuðum. Við byggjum nálgun okkar á djúpum skilningi á markaðnum, kaupendum og þeim áskorunum sem byggingaraðilar standa frammi fyrir.

Markmið okkar er ávallt að hjálpa viðskiptavinum að draga úr áhættu, auka fyrirsjáanleika og hámarka virði fasteignaverkefna.

Sölukerfi PROPR — gagnvirkt íbúðaval
PROPR farsímaupplifun
SelectorGagnvirkt sölukerfi og þrívítt yfirlitskort.
Verk

Hér má líta úrval verkefna sem sýna hvernig við höfum í góðri samvinnu við viðskiptavini okkar sameinað stefnumótun, hönnun, tækni og markaðssetningu til að skapa árangur fyrir fasteigna- og þróunarverkefni.

Orkureiturinn
Söluvefur ársins 2025
Efstaleitið
Efstaleitið
Borgarhöfði
Borgarhöfði
  • Merki og mörkun
  • Konsept
  • 3D verkumsjón með undirverktökum
  • Merkingar og signage svæði
  • Litaval, efnisval með arkitektum
  • Innanhússteikningar í samvinnu við Rut Kára
  • Markaðsfærsla
  • Vefsíða
  • Disruption stefnumótun
  • Nafn
  • Merki og mörkun
  • Konsept
  • Vitundarherferð
  • Almannatengsl
  • Markaðsfærsla
  • Vefsíða og sölusíða
  • Auglýsingar og eftirfylgni í takt við þróun verkefnis
  • Disruption stefnumótun
  • Nafn
  • Merki og mörkun
  • Konsept
  • 3D verkumsjón með undirverktökum
  • Almannatengsl
  • Markaðssókn
  • Vefsíða
  • Disruption stefnumótun
  • Nafn
  • Merki og mörkun
  • Konsept
  • Almannatengsl
  • Markaðssókn
  • Vefsíða, lendingarsíða
  • Nafn
  • Merki og mörkun
  • Konsept
  • 3D verkumsjón með undirverktökum
  • Almannatengsl og kynningar fyrir Borgarráði Reykjavíkurborgar
  • Markaðssókn á grunnstigi
  • Vefsíða sem lendingarsíða á fyrstu stigum
  • Nafngift, merki og mörkun
  • Vefsíða, lendingarsíða
  • Kynningarefni
  • Merki og mörkun
  • Vefsíða, lendingarsíða
  • Kynningarefni
  • Verkefni í vinnslu
  • Markaðsstrategía, tónn og rödd
  • Konsept
  • Merki og mörkun
  • Vefsíða, lendingarsíða
  • Verk í vinnslu
  • Merki og mörkun
  • Vefsíða og sölusíða
Hvað tökum við að okkur?

Heildstæð þjónusta frá fyrstu hugmynd að uppseldu verkefni.

Sterk verkefni byrja á sterkri stefnu. Við skilgreinum markmið, markhópa, staðsetningu og sögu verkefnisins til að skapa skýran grunn fyrir sölu og markaðssetningu.

Markviss markaðssetning þvert á miðla; stafræna miðla, prent, útimiðla og aðrar birtingarleiðir. Við byggjum grunn að auknum sýnileika, eftirspurn og áhuga á öllum stigum verkefnisins.

Við greinum markaðinn, samkeppnina og kauphegðun til að styðja við betri ákvarðanatöku og hámarka árangur markaðs- og söluaðgerða.

Við hjálpum verkefnum að ná augum og eyrum réttra hagaðila, fjölmiðla og almennings. Markmiðið er að byggja upp traust, skilning og jákvæða umræðu og umtal.

Skýr skilaboð og sterk hugmyndafræði eru lykillinn að árangri. Við þróum allt frá slagorðum og lykilskilaboðum yfir í efni fyrir herferðir og sölugögn.

Raunsæjar þrívíddarmyndir af innanhúss- og utanhússrýmum, sýndarveruleika og annarri upplifun sem hjálpar fólki að skoða framtíðareign sína ofan í kjölinn, ásamt umhverfi og samhengi við þjónustu og annað í umhverfinu sem laðar fólk að.

Við mótum sjónræna ásýnd verkefna með það að markmiði að skapa sterka og samræmda upplifun á öllum snertiflötum.

Vandaðar grunnteikningar, hæðaplön og önnur sjónræn gögn sem auðvelda kaupendum að skilja verkefnið og taka upplýstar ákvarðanir.

Söluvefir og stafrænar lausnir sem eru hannaðar til að kynna verkefni, safna fyrirspurnum og styðja við skilvirkt söluferli.

Gagnvirkar lausnir sem gera notendum kleift að skoða verkefni, bera saman eignir og finna réttu eininguna á einfaldan og sjónrænan hátt.

CRM, lead management og mælaborð sem sameina söluupplýsingar, markaðsgögn og stöðu verkefna á einum stað.

Við höldum utan um ferlið frá upphafi til enda og tryggjum að allir þættir verkefnisins vinni saman á skilvirkan og markvissan hátt.

Ljósmyndir, myndbönd, greinaskrif, samfélagsmiðlaefni og annað efni sem styður við sölu, sýnileika og vörumerkið.

Hágæða renderingar unnar af nákvæmni og alúð. Myndefni sem byggir á raunverulegum teikningum, efnisvali og forsendum verkefnisins.